Skilmálar þessir gilda frá 01.07 2026.
Samnings skilmálar Sólbaðsstofan Smart kt. 470599-2869.
Við hvetjum þig til þess að kynna þér vel skilmála áskriftarsamningsins.
Slíkt fyrirbyggir misskilning og stuðlar að greiðum
og góðum samskiptum í framtíðinni.
Til að nýta þjónustu og áskrift Sólbaðstofunnar Smart þarf áskrifandi að hafa náð 18 ára aldri. Sólbaðsstofan Smart áskilur sér rétt til þess að rifta samning þessum ef aðili er ekki orðinn 18 ára gamall. Skilríki ber að sýna í hvert skipti sem sólbaðsstofan er sótt af viðskiptavini. samfélagsmiðlaprófíll gildir ekki sem skilríki.
Ekki fæst endurgreiðsla fyrir fyrstu greiðslu áskriftarsamnings ef til riftunar kemur vegna brots á reglum skilmála.
Eftirfarandi skilmálar gilda um áskrift að ljósatímum hjá Sólbaðstofunni Smart og er bæði áskrifendum og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum.
Sólbaðstofan Smart veitir áskrifanda aðgang að ljósakorti sem áskrifandi er greiðandi að hverju sinni.
Sólbaðsstofan Smart leigir áskrifanda ótakmarkaða ljósatímanotkun á meðan hann er með gildan samning miðað við eitt skipti á dag og tímalengd hvers tíma miðast við áskrift áskrifanda. Áskrifanda er ekki heimilt að leyfa öðrum að nota
áskriftina með því að selja, leigja, gefa eða láta hana af hendi með öðrum hætti.
Sólbaðsstofan Smart býður upp á áskriftarsamninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig með 1 til 3 mánaða uppsagnarfrest.
Áskriftarsamningur fellur úr gildi þremur mánuðum eftir að
áskrifandi hefur sagt honum upp. Nema um sé að ræða ótímabundin samning þá er uppsagnarfrestur 1 mánuður.
Greidd áskrift er ekki afturkræf, áskrifandi greiðir mánaðarlega umsamda fjárhæð til Sólbaðsstofunar Smart á meðan samningur er í gildi.
Áskrift hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram.
Áskrifandi greiðir mánaðargjald skv. gjaldskrá Sólbaðstofunnar Smart fyrir afnot sín af einstaklingskorti.
Sólbaðstofunnar Smart er heimilt að breyta mánaðargjaldinu með tilkynningu á www.smartsol.is. Þó breytist mánaðargjaldið ekki fyrstu 1 eða 3 mánuðina.
Sólbaðstofan Smart er heimilt að flétta upp þeim sem gerast áskrifendur upp á vanskilaskrá creditinfo (Lánstraust hf).
Sé áskrifandi á vanskilaskrá getur Sólbaðstofan Smart rift samningi þessum án frekari viðvarana- og/eða hafnað nýskráningu hans.
Áskrifandi heimilar Sólbaðstofunni Smart að óska skráningar á vanskilaskrá Creditinfo Lánstraust hf. þegar vanskil hafa
varað í að minnsta kosti 60 daga, að öðrum skilyrðum uppfylltum.
Sólbaðstofunnar Smart er eigandi ljósabekkjanna og ber áskrifanda að gæta þeirra og fara vel með þá.
Hætti áskrifandi að greiða áskrift áður en samningstíma lýkur skv. 3. gr. er Sólbaðstofunni Smart heimilt að stöðva ljósanotkun á
sólbaðsstofunni til áskrifandans. Áskrifandinn skal engu að síður greiða umsamið áskriftargjald út samningstímann auk kostnaðar sem kann að hljótast af innheimtu þess.
Segi áskrifandi upp áskrift eða greiði hann ekki áskriftargjaldið eftir að samningstíma lýkur lokast og eyðist kortið en ef um er samið áður en það lokast að þá er mögulegt að ræða sama samkomulag, annars
gildir verðskrá hverju sinni.
Uppsagnir skulu berast með þriggja (3) mánaða fyrirvara eða eins (1) mánaða fyrirvara og skal vera sagt upp fyrir 15. þess mánaðar svo uppsögn taki gildi næstkomandi mánaðarmót. Sjá uppsagnir áskrifta hér
Samningar endurnýjast sjálfkrafa hafi viðskiptavinur ekki sagt upp samning í gegnum vef Sólbaðstofunnar Smart.
Kjósi áskrifandi sem greiðir áskriftargjaldið reglulega, með greiðslukorti, beingreiðslu, eða boðgreiðslum að gera breytingar á áskrift, hvort heldur er varðandi samsetningu áskriftar sem greitt er fyrir eða greiðslumáta
áskriftargjaldsins, ber honum að tilkynna slíkar breytingar til Sólbaðstofunnar Smart.
Tilkynning þarf að berast eigi síðar en 13. dag
næsta mánaðar á undan þeim mánuði sem breytingunum er ætlað að taka gildi.
Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum er Sólbaðstofunni Smart heimilt, án fyrirvara, að stöðva notkun á ljósakortinu til hans og krefjast tafarlausra greiðslu skaðabóta með innheimtuaðgerðum.
Innheimta korta/reikninga er í höndum Repeat eða aðila sem Sólbaðstofan Smart ákveður og hefur til þess leyfi.
Óheimilt að leyfa þriðja aðila að nýta sér kortið með einhverjum hætti, og ekki er hægt að bjóða þriðja aðila með sér á áskriftarkort.
Sólbaðstofan Smart áskilur sér rétt til þess að breyta áskriftarskilmálum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á heimasíðunni smartsol.is
Með undirskrift sinni á áskriftarsamningi þessum skuldbindur áskrifandi sig til að hlíta skilmálum sem Sólbaðstofan Smart setur og fram koma í þessum samningi um aðgang áskrifanda að ljósakortinu.
Sólbaðstofan Smart heitir áskrifanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem áskrifandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar frá áskrifanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Mál út af samningi þessum má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
